Bláklædda konan – Rauða serían
Ástarsögur
Hann gat ekki sagt nei…
Hún hafði ásjónu engils og hinn fullkomna líkama… og hún bað hann um hjálp við að láta sig hverfa! Sam Zachary var einkaspæjari en ekki törframaður. Hann langaði að vísa henni á dyr …
En bauð henni þess í stað að koma heim með sér. Hann hélt að hún yrði örugg í sveitinni en það fór á annan veg. Byssukúlur þutu inn um eldhúsgluggann og stúlkan fagra leitaði huggunar í faðmi hans… og rúminu hans. Húsið hans Sams í sveitinni var því enginn griðastaður. Laura hafði komið skipulögðu, einmanalegu lífi hans í uppnám og enda þótt hann gæti vel lifað án kúlnahríðarinnar gat hann með engu móti hugsað sér að lifa án þessarar konu. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.