Ætigarðurinn
Handbók grasnytjungsins
Listakonan Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri allan ársins hring. Hér leiðir hún okkur á vit móður nátturu og sýnir okkur fram á hve ánægjulegt er að lifa í sambýli við hana. Í bókinni eru girnilegar uppskriftir og áhugaverðar frásagnir um lífið, lækningar og hugmyndafræði ræktunar. Ætigarðurinn og hugmyndafræði ræktunar. Ætigarðurinn er gagnlegt uppflettirit en jafnframt skemmtilega saga höfundar sem hefur aflað sér viðamikillar þekkingar á þeirri menningu sem tengist ræktun – bæði á Íslandi og víða um heim. (heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Ætigarðurinn, handbók grasnytjungsins er skipt niður í 6 kafla með mörgum undirköflum, þeir eru:
- Að finna í matinn (11 undirkaflar)
- Vorið (52 undirkaflar)
- Sumarið ( 34 undirkaflar)
- Haustið (41 undirkaflar)
- Veturinn (13 undirkaflar)
- Saga grasnytjungsins (21 undirkaflar)
Ástand: bæði innsíður og kápa mjög góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.