Leynifélagið sjö saman, gefast aldrei upp
Enginn spennandi ævintýri virtust í sjónmáli hjá leynifélaginu Sjö saman en það var ekkert vit í að sitja og láta sér leiðast. Þess vegna úthlutaði Pétur öllum krökkunum verkefnum til að æfa sig á. Þá var nú fjör – fyrir alla nema Georg greyið! Hann lenti í hræðilegum vandræðum og neyddist til að hætta í leynifélaginu.
Krakkarnir völdu sér nýjan félaga í staðinn – félaga sem allir gátu samþykkt – og svo uppgötvuðu þau leyndardóm sem þurfti að rannsaka nánar. Hvernig í ósköpunum gat hundur gufað upp? Og var ekki eitthvað dularfullt við það hve margir hundar höfðu týnst? Hér var sannarlega eitthvað undarlegt á seyði! En ef Georg hefði ekki kommið til hjálpar hefði getað farið illa …. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.