F-eins og í flótti
Kinsey Millhone er einkaspæjari í Kaliforníu. Á fjörur hennar rekur mál Bailey Fowlers sem ákærður var fyrir morð á unnustu sinni, játði það og hlaut dóm. Honum tókst að flýja úr fangelsinu og hefur farið huldu höfði um árabil þegar loks næst til hans. Þá er rykið dustað af hinni gömlu morðákæru en Bailey segist nú vera saklaus. Dauðvona faðir hans trúir á sakleysi sonar síns og ræður Kinsey til þess að komast að hinu sanna. Sú rannsókn leiðir hana á vit fjölda fólks og smám saman kemst hún að því að ýmsir í hinu litla bæjarfélagi þeirra feðga tengjast málinu og kæra sig lítt um að það sé rifjað upp. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.