Ráðgátan í Barsmíðahúsi
Það gengur stundum dálítið mikið á þegar Snúður frændi og hundurinn hans, Bjálfi, koma að heimsækja Reyni og Dóru og foreldra þeirra í jólaleyfinu. Það er eins og heil fílahjörð sé á ferð þegar von er á Róbert gamla frænda, sem þolire ekki hávaða. En þá vill svo heppilega til að vinur krakkanna, sirkusstrákurinn Bjarni, hringir og býður þeim að dvelja með sér í gömlu húsi upp í fjöllum – Barsmíðahúsi. Þau hafa ekki verið þar lengi þegar undarleg högg fara að heyrast inn í húsinu. Enginn veit hvaðan þau koma, og ráðskonan, frú Kitla, segir að meira en hundrað á séu síðan þessi dularfullu högg heyrðust síðast í Barsmíðahúsi. Og þegar allt fer á kaf í snjó og síminn bilar verður körkkunum ljóst að þau verða að ráða þessa dularfullu gátu á eigin spýtur. Hún verður sífellt undarlegri – og meira að segja snjókarlinn fer á flakk…
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.