Matur sem yngir og eflir
96 ofurhollar og ljúffengar uppskriftir sem auka lífsþrótt og orku. Hér er meðal annars að finna næringarríkan morgunmat, þeytinga, orkubita, brauð, kjöt- og fiskrétti, gómsætar súpur og dísætar – en ofurhollar kökur. Auk uppskriftanna er í bókinni mikill fróðleikur um næringargildi og bætiefni og Þorbjörg gefur ótal góð ráð um hvernig við getum haldið okkur ungum og hraustum.
Allt snýst þetta um:
• Réttu fituna sem eykur brennslu og viðheldur ljóma húðarinnar
• Rétta hráefnið sem kemur jafnvægi á blóðsykurinn og hormónabúskapinn
• Góðu prótínin sem efla og styrkja kroppinn
• Grænmeti og ávexti í öllum regnbogans litum
Þorbjörg hefur rannsakað mataræði og nútímalífsstíl síðustu 25 ár og komist að niðurstöðu um hvers konar matur og næringarefni viðhalda best æsku og lífsþrótti. Bókin kom fyrst út í Danmörku 2009 og þaut beint á metsölulista, enda happafengur fyrir fólk sem hugsar um heilsuna og vill fá sem mest út úr lífinu.
Bókin Matur sem yngir og eflir er skipt niður í 12 kafla, þeir eru:
- Eflandi morgunverður sem kemur þér fram úr bólinu
- Hressandi aukabitar sem jafna blóðsykurinn
- Ljúffengt brauð sem kemur þér í form
- Kröftugar og gómsætar súpur
- Prótínríkur kvöldmatur sem viðheldur æsku og vellíðan
- Lítrík salöt sem styrkja ónæmiskerfið
- Orkuríkt ofurmeðlæti
- Syndamleg sætindi með himnesku bragði og fullt af næringu
- Yngjandi salatsósur og ídýfur sem halda hrukkunum í skefjum
- Draumadrykkir sem stæla líkamann og fylla hann af orku
- Kraftmiklir matseðlar: dögurðar, hádegis- og kvöldverðarborð fyrir fjölskyldu og vini
- Bætiefnin hennar Þorbjargar
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.