Landeyingabók

Saga jarða og ábúðar í Austur-Landeyjum

Grunnurinn að Landeyingabók var lagður af Valgeiri Sigurðssyni fræðimanni á Þingskálum. Hann hafði áður samið Rangvellingabók, en það rit þotti bera af öðrum svipaðrar gerða um nákvæmni og áreiðanleika. Því var vandi á ferðum við framhald verksins þegar Valgeir féll skyndilega frá snemma árs 1971. Til starfsins réðst Ragnar Böðvarsson æskufélagi Valgeirs og hefur hann stýrt verkinu og haft veg og vanda af lokafrágangi, en honum til aðstoðar hafa verið Þorgils Jónsson sagnfræðingur og bróðir Valgeirs, Ingólfur Sigurðussoin á Þingskálum.

Í bókinni er rakin saga jarða á Austur-Landeyjum og fólksins sem þær hefur setið frá því að sögur hófust og til þessa daga. Saga eignarhalds á jörðunum er sögð og gömul og ný landamerki sráð. Getið er allra bænda og húsmæðra sem heimildir hafa fundist um, ættir þeirra og æviferill rakinn og sagt frá börnum þeirra. Lýsingar eru á mörgu fólki og myndir eru birta af um 500 manns. (Heimildir: Bakhlið bókarinnar)

Verkið Landeyingabók eru 11 kaflar, þeir eru:

  • Kort af Austur-Landeyjum
  • Formáli
  • Inngangur
  • Bæir og búendur í Austur Landeyjum
  • Um einstakar ættfærslur
  • Bæjarnöfn í Austur-Landeyjum
  • Heimavarnarlið Levetzovs
  • Bókakaup Landeyinga
  • Jarðamat að fornu
  • Fornar erfðaregluir
  • Algengustu skammstafanir
  • Rithandasýnishorn úr Landeyjum
  • Brúðargangur
  • Mannfjöldi í Austur-Landeyjum
  • Viðauki
    • Heimildaskrá
    • Nafnaskrá

Ástand: bæði innsíður, kjölur og harðakápa góð, en lausa kápan orðin þreytt. Ekki nafnamerkt né krot er í bókunum

Landeyingabók Austur-Landeyjar - rakin saga jarða í Austur-Landeyjum og fólksins

kr.2.900

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,4 kg
Ummál 18 × 4 × 25 cm
Blaðsíður:

566 +myndir, kort, ritsýni, töflur

ISBN

9979604840

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Austur-Landeyjahreppur

Útgáfustaður:

Gunnarshólma, Austur-Landeyjahreppi

Útgáfuár:

1999 (1. útgáfa)

Höfundur:

Valgeir Sigurðsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Landeyingabók, Austur-Landeyjar – saga jarða í Austur-Landeyjum og fólksins”