Jakob Thorarensen skáldverk I – VI bindi, útgáfa 1975
Jakob Thorarensen skáld fæddist á Fossi í Hrútafirði 18. maí 1886 og lést 1972. Hann var sonur Jakobs Thorarensen, úrsmiðs á Fossi og síðar vitavarðar á Gjögri, og Vilhelmínu Gísladóttur húsfreyju. Jakob gerðist trésmiður og stundaði trésmíðaiðnina um mörg ár, einkum húsasmíði, en yakti þegar mikla athygli sem ljóðskáld.
Jakob Thorarensen gerðist strax þjóðkunnur af fyrstu ljóðabók sinni, „Snæljós„, 1914, alla tíð voru kvæði hans í góðum metum meðal almennings, enda auðkennileg að efni og svipmóti. Smásögur hans, sem flestar eru sama merki brenndar, urðu seinni til að kveðja sér hljóðs og stóðu, m.a. þess vegna lengi fram eftir í skugga ljóðanna, en á síðari árum hefur mönnum orðið æ augljósara að einnig á þessu sviði skar höfundurinn sig trúlega úr hópi annarra sagnaskilda samtíðarinnar og einkum er skopstíll hans mjög sérstæður og skemmtilegur, þótt hann liggi ekki alltaf óvönum bókmenntalesendum í augum upp. (Heimildir: Tómas Guðmundsson, Formálsorð bókarinnar)
Einar Benediktsson ritaði um fyrstu ljóðabók Jakobs Thorarensens, „Snæljós“, í Þjóðstefnu 1916. Þar leggur hann áherslu á rammíslenzk einkenni höfundarins, skýra og sterka hugsun, nákvæmi í byggingu hinna bundnu málsgreina og sjálfstæði gagnvart öðrum höfundum. Honum er það ljóst að hið unga skáld hefur numið mikið en hvergi látið áhrif annarra bera sig ofurliði. Einar líkir skáldinu við Knut hamsun – þar sem öll meðferð ljóðsins sé háð „sjálfstæðri eigin-menning“. (Heimild: Eiríkur Hrenn Finnbogason, Um höfundinn)
Jakobs Thorarensen Skáldverk I.-VI. bindi:
I. bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Sögur:
bls. 265
Efnisyfirlit:
Skuldadagar, Hlátur, Helfró, Hneykslið, Ilmur vatnanna, Viðsjár talnanna, Bréf svarað, Of snemmt – of seint, Endurfæðing, Ofsi þróunarinnar, Langferð inn í liðna tíð, Aflandsvindur, Á batavegi, Forboðnu eplin, Dimmir dagar, Bleikt lauf, „Áttu pró mill“
II bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Sögur
Bls. 265.
Efnisyfirlit:
Með tímans straumi, Elliglöpin, Konan við leiðið, Dæmdur maður, Í gildru, Ný máttarvöld, Gunna svarta, Undrin í Váladal, Frú Zophónía Smith, Sigþrúður á Svalfelli, Véfréttin laug, Hvíld á háheiðinni, Dökkvar horfur, Valkyrjan, Sómavendni.
III bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Sögur og leikrit
Bls. 282
Efnisyfirlit:
Huliðsöfl og hindurvitni, Andstætt viðhorf, Fyrir rannsóknarrétti, Víða liggja vegamót, Aldnar hendur, Stóra plága, Barnórar, Ljótunn fargað, Í rigningartíð, Seggur í sumarfríi, Í þröngri vök, Óðalsþótti, Sígaréttan og rjólið, Örðug stramhvörf, Hringferð – leikrit í fjórum þáttum.
IV bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Kvæði
Bls. 222.
Í þessu bindi eru birt 110 kvæði.
IV bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Kvæði
Bls. 238
Í þessu bindi eru birt 126 kvæði
VI bindi Jakob Thorarensen skáldverk. Kvæði
Bls. 256.
Í bindi þessu eru birt 286 kvæði
Ástand: góð eintök







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.