Ströndin endalausa
Flóra MacKensie rekur matsöluna Sumareldhúsið í fallegu bleiku húsi við höfnina á skosku eyjunni Mure. Hún nýtur þess að elda gómsæta rétti fyrir eyjarskeggja og ferðamenn sem leita þar skjóls fyrir veðri og vindum. Allt leikur í lyndi en þó er eitt sem angra. Kærastinn, hinn fjallmyndarlegi Joel, er oft fjarverandi vegna vinnu sinnar fyrir auðkýfinginn Colton og Flóru finnst eins og hann leyni hana einhverju. Flóra er þó ekki ein um að eiga í vandræðum í einkalífinu. Besta vinkona hennar, Lorna, er yfir sig ástfangin af sýrlenska lækninum Saif en hann bíður frétta af eiginkonu sinni og sonum sem hann varð viðskila við á flótta frá heimalandinu. Tekst vinkonunum að höndla hamingjuna og ástina?
Sjálfstætt framhald Sumareldhúss Flóru. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.