Ráðgátan í víkinni
Það þarf ekki að bíða lengi eftir dularfullum atburðum, þegar Reynir, Dóra, hrekkjalómurinn hann Snúður frændi þeirra og hundurinn Bjálfi fara í sumarfrí til Straumsvíkur og dvelja þar á gistihúsinu „Þrír í balanumn“. Þar eru margir sérkennilegir gestir, þar á meðal trúðar úr fjölleikahúsi og hinn dularfulli Matthías galdramaður, Jónas prófessor, sem þykist heyra illa, ungfrú Bíbí, sem aldrei getur þagað, og söngkonan Íris Næturdís. Og svo koma vinir krakkanna, flökkustrákurinn Bjarni og apinn Miranda, og þá verður gaman – eða hvað? Skyldi Bjarni takast að finna föður sinn með aðstoð Matthíasar galdramanns?
Skammt frá þorpinu er leynileg kafbátahöfn, og eina nóttina leikur allt á reiðiskjálfi. Dularfull sprenging hefur orðið í kafbátahöfninni. Eru svikarar og skemmdarverkamenn á ferð? Og hver er það sem sendir ljósmerki frá gamla gistihúsinu að næturlagi? Áður en varir hafa krakkarnir dregist inn í æsispennandi ævintýri…
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.