Iðrun
Iðrun er saga fjögurra kynslóða Tholstrup-ættarinnar og spannar sjötíu ár, saga sem einkennist af einlægri ást, ástríðum og metnaði en líka blekkingum og lygum sem eitra líf fjölskyldunnar.
Ættfaðirinn Thorvald er vinsæll prestur á Jótlandi þegar Þjóðverjar hernema Danmörku. Brennandi andstaða hans í stólræðum vekur heift Þjóðverja og hann þarf að fara huldu höfði. Samband hans við félaga í andspyrnuhreyfingunni hefur afleiðingar sem hann segir fjölskyldu sinni ekki frá þegar stríðinu lýkur. En Leo, annar tvíburasona hans, kemst að leyndarmálinu og getur ekki fyrirgefið föður sínum – þó að hann nauðugur viljugur endurtaki blekkingaleikinn í sínu lífi. Dóttur Leos, Helenu, gengur allt í haginn en einnig hún hefur geymt með sjálfri sér óþægilegt leyndarmál sem hún neyðist til að horfast í augu við einn örlagaríkan sólarhring í september árið 2011. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.