Hundalíf II – Depill í London
Disney ævintýri sem framhald af myndinni Hundalíf (101 Dalmatians) frá Walt Disney
Depill dáist mikið að undrahundinum Þrumufleig sem hann sér svo oft í sjónvarpinu. Dag einn fær hann óvænt tækifæri til að hitta hann. Saman lenda þeir í spennandi ævintýrum en líka í hættu. Grimmhildur er nefnilega komin aftur á kreik, með nýjar aðgerðir til að fanga alla Dalmatíuhundana!
Bók þessi byggir á mynd sem kom út árið 2003 hjá Walt Disney og er sú mynd byggð á Hundalíf I (101 Dalmatians) en hún kom upphaflega út árið 1961 hjá Walt Disney. Sú mynd er byggð á sögu eftir enska rithöfundin Dodie Smith sem er rithöfundarnafn fyrir Dorothy Gladys Smith (1896-1990)
Hægt er að sjá myndskeið á youtube hér