Hin myrku djúp

Hin myrku djúp er fyrsta bókin um lögregluforingjann Veru Stanhope í Northumberland á Englandi, en bækurnar um hana njóta mikilla vinsælda víða um lönd, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta sem m.a. hafa verið sýndir hér á landi. Þegar Julie Armstrong kemur heim til sín seint um kvöld eftir að hafa farið að skemmta sér finnur hún sér til skelfingar son sinn í baðkarinu þakinn blómum. Hann hafði verið kyrktur. Nokkru síðar finnst lík af ungri kennslukonu í grunnri tjörn og hafði blómum sömuleiðis verið sáldrað yfir líkama hennar.

Lögregluforinginn Vera Stanhope í Northumerland rannsakar málið. Morðin verða til þess að heimamenn taka að ljóstra upp sínum myrkustu leyndarmálum. Morðinginn fylgist með og bíður færis að undirbúa nýja vota blómagröf … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves hún er höfundur að Veru Stanhope  og Shetland-seríunni

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.

Hin myrku djúp - Ann Cleeves - Ugla útgáfa 2016 - Kilja

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,350 kg
Ummál 12 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

288

ISBN

9789935210937

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

Hidden depths

Útgefandi:

Bókafélagið Ugla

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2016

Hönnun:

Aðalsteinn S Sigfússon (kápuhönnun), Ugla (umbrot)

Íslensk þýðing

Þórdís Bachmann

Höfundur:

Ann Cleeves

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Hin myrku djúp – Ann Cleeves – Kilja”