Fyrsta málið

Á dimmum og köldum desembermorgni kemur rannsóknar­ fulltrúinn Kim Stone inn á lögreglustöðina í Halesowen. Hún er að fara að hitta nýja liðið sitt í fyrsta sinn. Fórnarlambið í næsta máli er sömuleiðis að fara að hitta morðingja sinn …

Þegar lík ungs manns finnst afhöfðað og neglt við jörðina eru Kim og nýja liðið hennar fljót á vettvang. Við leit á heimili fórnarlambsins finnur Kim svefnherbergi lítillar stúlku og falda fartölvu, en hvar er barnið? Þegar Kim byrjar að fletta ofan af hroðalegum sannleikanum um fórnarlambið koma óhugnanleg líkindi í ljós við nýlegt morð á manni sem fannst undir stiga í Redland Hall með fjölda stungusára – og Kim uppgötvar tengsl við kvennaathvarf. Þar sem hún sjálf er afsprengi félagsmálakerfisins veit hún vel hvað það er að vera í viðkvæmri stöðu. Er athvarfið lykillinn að lausn málsins?

Morðinginn mun láta aftur til skarar skríða og Kim gengur erfiðlega með nýstofnað lið sitt. Hin óreynda Stacey á frábæra spretti en skortir sjálfstraust, Bryant er traustur og rólegur en Dawson er dragbítur á liðinu. Tekst Kim að fá Dawson til að láta að stjórn og hópinn til að vinna saman og ná morðingjanum áður en fleiri láta lífið? Í þetta sinn er kollegi hennar mögulega í mikilli hættu… (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.

Fyrsta málið - Angela Marsons - Drápa útgáfa 2021 - Kilja

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,450 kg
Ummál 12 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

335

ISBN

9789935947598

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

First blood

Útgefandi:

Drápa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2021

Hönnun:

Arndís Lilja Guðmundsdóttir (hönnun og umbrot)

Íslensk þýðing

Ingunn Snædal

Höfundur:

Angela Marsons

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fyrsta málið – Angela Marsons – Kilja”