Bangsímon og hunangstréð
Geisladiskur fylgir
Bangsímon er svangur en hunangskrukkurnar hans eru tómar. Hann leggur því af stað út í Hundraðekruskóg til að leita sér matar. Þar bíða hans mörg ævintýri því það er ekkert hik á Bangsímon þegar hungrið segir til sín. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Disney ævintýri en byggð á mynd sem Walt Disney gerði og var fyrst sýnd 4. febrúar 1966 og byggðu þeir mynd sem sína á bók eftir enska rithöfundinn A. A Milne (f. 18. janúar 1882 – d. 31. janúar 1956). Fyrsta bókin kom út þann 14. október árið 1926 og heitir „Winnie the Pooh“, á frummálinu. Bangsinn ljúfi í sögum Milne dró nafn sitt af leikfangabangsa Christopher Robins, sonar Milne. Nokkrar aðrar persónur í sögum Milne voru skírðar eftir tuskudýrum Robins, svo sem Eyrnaslapi (Eeyore) og Grislingur (Piglet).
Bangsi Robins hét í fyrstu Edward Bear en Robin gaf honum síðan nafnið Winnie eftir birni í dýragarðinum í London sem sonur hans hafði dálæti á. Sá björn var í dýragarðinum frá árinu 1919 til 1934 og kom upphaflega frá Winnipeg í Kanada og dró nafn sitt af borginni, stytt sem Winnie. Nafnið Pooh var upprunalega heiti á svani sem oft sást á landareign Milne. (Heimild: Vísindavefur.is / JGÞ; Wikipedia )
Ástand: kápan er í góðu formi og innsíðurnar góðar.