Refaskyttan hugljúfa Sigurður Ásgeirsson
Ævisagan byggir á frásögnum vina Sigurðar Ásgeirssonar: Einars Jónssonar úr Skógum, Lilju Sigurðardóttur, Sveins Runólfssonar, Jóns Ragnars Björnssonar, Jóns R. Hjálmarssonar, Sigurðar Boga Sævarssonar, Viðars Jónssonar, Sigþórs Sigurðssonar.
Í tilefni þess að hinn landsfrægi veiðimaður og þúsundþjalasmiður, Sigurður Ásgeirsson, hefði orðið áttræður 19. desember 2010 vilja vinir hans minnast hans með þessari bók. Hér er ekki um hefðbundna ævisögu að ræða heldur minningabrot vina og samferðarmanna Sigurðar sem var annáluð refaskytta,veiðimaður, náttúruunnandi og umfram allt hlýr, skemmtilegur og eftirminnilegur félagi. Hann var sjálfmenntaður hönnuður og smíðaði fjölda véla og tækja fyrir Landgræðsluna. Lifandi frásögn studd fjölda fágætra ljósmynda. (Heimildir: Bókatíðindi)
Í bókinni Refaskyttan hugljúfa er sagt frá veiðimanninum, náttúruunnandanum og þúsundþjalarsmiðnum Sigurði Ásgeirssyni frá Framnesi í Mýrdal sem um langt árabil var ráðsmaður Landgræðslunni í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Hann var snilingur í frumsíði véla og verkfæra og mörg eru þau tæki í Gunnarsholti er bera handbragði hans fagurt vitni. Sigurður var einnig einstakur hagleiksmaður á tré og járn. Það eru þó ekki störf hans þar á bæ sem eru í sviðsljósinu í bókinni heldur ævintýralegur vferill kappans upp til heiða með byssur í farteskinu. Sigurður var landsþekktur veiðimaður og annáluð skytta. Hann stundaði meðal annars refaveiðar, minkaveiðar, hreindýraveiðar, lax- og silungsveiðar. Á ferðum sínum kynntist hann náttúru landsins, fyrir henni bar hann virðingu og kunni flestum öðrum betur skil á lifnaðarháttum refsins, fugla og fleiri dýra. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Refaskyttan hugljúfa Sigurður Ásgeirsson eru 10 kaflar, þeir eru:
- Uppruni og æskuár
- Árin mín með Sigga
- Störf Sigurðar hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti
- Mér gengur oft nokkuð vel að hitta
- Á refaslóðum
- Á refaveiðum í meira en hálfa öld
- Syrpa – stuttar frásagnir af Sigurði
- Skemmtilegur félagi í grenjaleit
- Þrjár dulmagnaðar sögur af Sigga
- Kynni mín af Sigurði
Ástand: gott, laus við allt krot.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.