Atvinnuhættir Austur-Skaftfellinga
Í þessari bók er einkum fjallað um atvinnulíf í héraðinu og framleiðslu til lands og sjávar, starfshættir, breytingar á þeim og þróun vinnubragða með aukinni tækni, einnig um húsagerð, aðstöðu manna fyrr og nú til að njóta lífsþæginda o.fl.
Á þessari öld hafa orðið örar breytingar og stórfelldar á atvinnuháttum og þjóðlífi. Þeir menn, sem nú eru orðnir rosknir, muna vissulega tvenna tímana. Hinir ungu, sem erfa landið, verða að eiga þessa kost að kynna sér aðstöðu, starfshætti og lífsbaráttu manna á liðnum tíma. Þá koma einkum að notum minjasöfn og saga atvinnulífs og þjóðhátta. Þessi bók er við það miðuð, að hún geti orðið framvegis leiðarvísir til nokkurrar þekkingar á þessu efni. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Atvinnuhættir Austur-Skaftfellinga eru 24 kaflar fyrir utan viðauka, þeir eru:
- Formáli
- Héraðið
- Landslag
- Veðurfar
- Mannfjöldi
- Hreppar – þingstaðir
- Landgæði
- Samgöngur
- Landbúnaður
- Hlunnindi
- Sjávarútvegur
- Verslun
- Flutningar
- Iðnaður
- Vorannir
- Sumarstörf
- Haustverk
- Vetrarvinna
- Eldiviður
- Vatn
- Rafmagn
- Matargerð
- Félög
- Skipströnd
- Þróun
- Heimildir
Ástand: gott








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.