Leynifélagið sjö saman ræður gátuna
Krakkarnir í leynifélaginu Sjö saman eru alltaf að lenda í ævintýrum – alveg óvart. Þegar þau misstu fundarstaðinn sinn þurftu þau að finna sér nýjar bækistöðvar. Faldi hellirinn í gömlu námunni virtist tilvalinn staður – alveg þangað til skömmin hún Sússa komst á snoðir um hann. Þá urðu sjömenningarnir að búast til varnar. En hver var það sem var á ferli í hellinum þeirra? Var það bara Sússa, eða var einhver annar þar á ferð? Einhver sem ekki vildi láta sjálst til sín? Og hver hafði túnt minnisbókinni í hellinum – minnisbókinni þar sem getið var um felustað og leynilegt stefnumót? Þetta urðu sjömenningarnir að kanna nánar – og þar með hóst spennandi ævintýri!. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.