Í kröppum sjó
Helgi Hallvarðsson skipherra segir frá sægörðum og svaðilförum.
Helgi Hallvarðsson er sá af skipherrum Landhelgisgæslunnar sem hvað harðskeyttastur og áræðnastur var sagður heima og erlendis á dögum landhelgisstríðanna. Titillinn „The Maddest Axeman“ var ekki bara gamanyrði í munni breskra herskipaforingja, heldur var hann líka blandinn talsverðri lotningu. Helgi er sú mannerð sem með erlendum þjóðum hefði safnað að sér heiðurspeningum, krossum og stjörnum á vígvelli en þess í stað hefur Helgi uppskorið þakkar hug og virðingu landa sinna.
Fyrst sté Helgi um borð í varðskip árið 1946. Fjórum áratugum síðar og fjórum árum betur kvaddi hann flaggskip Gæslunnar, Tý, og er nú yfirmaður gæsluframkvæmda. Hann er því enn í miðri rás atburðanna og margt hefur á dagana drifið, bæði á sjó, í lofti og á landi. Loks eru ótalin afskipti hans af stjórnmálum, því þar varð hann auðvitað að blanda sér í slaginn líka. En þá vildi henda að „ásiglingar“ bar að höndum úr þeirri átt sem síst skyldi! (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Í kröppum sjó eru fimm kaflar, þeir eru:
- Leiðin út að línu
- Aðall gráu skipanna
- Sögur af sæúlfum
- Skipherra í lofti og á legi
- Mættust þar stálin stinn
Ástand: gott,
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.