Vopnin kvödd

Hún hafði dásamlega fallegt hár og stundum lá ég kannski kyrr og var að horfa á hana festa það í birtunni sem lagði innum opnar dyrnar og það glitraði jafnvel á nóttunni eins og vatn glitrar stundum rétt áður en komin er full dagsbirta. Hún hafði yndislegt andlit og líkama og yndislega mjúka húð líka. Stundum þegar við lágum saman þá kom ég kannski við kinnarnar á henni og ennið á henni og fyrir neðan augun á henni og hökuna á henni með fingurgómunum og sagði „slétt eins og píanónótur“, og þá strauk hún mér kannski um hökuna með einum fingri og sagði „slétt eins og sandpappír og fer illa með píanónótur“.

Vopnin kvödd er eitthvert þekktasta verk Ernest Hemingways, sem frægari hefur orðið öðrum bandarískum skáldsagnahöfunum á þessari öld. Sagan gerist á Ítalíu á árum fyrri heimsstyrjaldar og er í senn beisk úttekt stríðsins og mögnuð ástarsaga. Áhrifamagn hennar liggur framar öllu í því, með orðum Halldórs Laxness, „hvernig höfundur hennar kann að brúna án afláts hugtak ástarinnar með hugtaki dauðans“. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott

Vopnin kvödd - Ernest Hemingway útgáfa 1987

kr.1.800

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,850 kg
Ummál 17 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

325 +Eftirmáli / Halldór Laxness: bls. 321-324 +Viðbót þýðanda í tilefni af annari útgáfu / H.K.L: bls. 324-325

Heitir á frummáli

A farewell to arms

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1987 / 1941 (1. útgáfa, Mál og menning)

Íslensk þýðing

Halldór Laxness (ritar jafnframt eftirmála)

Höfundur:

Ernest Hemingway (heitir fullu nafni Ernest Miller Hemingway)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Vopnin kvödd – Ernest Hemingway – Uppseld”