Vængjatök – hugverk sunnlenskra kvenna

Vængjatök – hugverk sunnlenskra kvenna inniheldur hugverk eftir 151 sunnlenskar konur. Ferðalagið hefst á 17. öld með kveðskap Steinunnar Finnsdóttur og Sigríðar skáldu. Með því að ferðast með tímans fljóti geta lesendur upplifað samtíma hvers höfundar og oft leynist stórbrotinn lífsferill í æviágripum höfundar.

Yrkisefnið kvenna er oft tengt því sem hjartanu er kærast og gefur þeim sem leita eftir færi á að komast í innstu hugarþel alþýðukvenna sem byggt hafa Suðurland á liðnum öldum. Þó svo að önn dagsins hafi verið mikil hlýddu margar þeirri þörf hjartans að veita þránni til sköpunar útrás í bundnu máli eða lausu. Vængjatök voru tekin, knúin af sköpunarþrá hjartans, öld af öld.

Bókin Vængjatök – hugverk sunnlenskra kvenna er skipt í nafnaröð höfunda

Ástand: ný (ennþá í plastinu)

kr.2.850

8 á lager

Vörunúmer: 59786 Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,004 kg
Ummál 24,2 × 17,2 × 2,5 cm
Blaðsíður:

388

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

ISBN

9789979959786

Útgefandi:

Pjaxi, í dag sér Ritskinna um sölu og dreifingu

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004

Höfundur:

151 sunnlenskar konur

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Vængjatök – hugverk sunnlenskra kvenna”