Súkkulaði það besta frá Nóa-Síríus

Í rúman áratug hefur Nói-Síríus sent á hverju hausti frá sér uppskriftabækling sem Íslendingar hafa tekið sérstöku ástfóstri við. Kökubæklingurinn hefur lyft andanum á köldum vetrardögum þegar súkkulaðikaka eða konfektmoli er einmitt það sem þörf er á til að sjá tilveruna í bjartara ljósi. Hér hefur Marentza Poulsen safnað saman bestu uppskriftunum, sett þær í nýjan búning og bætt við fleirum í einni glæsilegustu uppskriftabók sem komið hefur út hér á landi og Gísli Egill Hrafnsson ljósmyndaði dýrðina. Ómótstæðilegar freistingar úr silkimjúku súkkulaði bíða nú þess eins að fá að bráðna í munni. Njótið vel!

Bókin Súkkulaði það besta frá Nóa-Síríus er skipt niður í 8 kafla, þeir eru:

  • Kökubæklingur á sparifötum
  • Um súkkulaði
  • Konfekt
  • Tertur
  • Smákökur
  • Skúffur
  • Eftirréttir
  • Uppskriftir

Ástand: Vel með farin

kr.1.000

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,628 kg
Ummál 24,5 × 1,5 × 22,5 cm
Blaðsíður:

124

ISBN

9979218924

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Vaka-Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2006

Ljósmyndir:

Gísli Egill Hrafnsson

Höfundur:

Marentza Poulsen (valdi uppskriftir)