Stórir brúnir vængir og fleiri sögur

Stórir brúnir vængir er fyrsta lausamálsbók Sveinbjörns I. Baldvinssonar. Áður hefur hann sent frá sér þrjár ljóðabækur og eina ljóðsögu á hljómplötu, skrifað sjónvarpsleikrit og kvikmyndahandrit.

Í þessari bók eru fimm sögur:

Stórir brúnir vængir. Miðaldramaður sem lifað hefur tíðindalitla ævi fær skyndilega alvarlegar fréttir. Við það breytist heimur hans.

Hitt augað. Ungur drengur liggur á spítala og bíður eftir alvarlegri aðgerð. Hann notar tímann áður en hann fer undir hnífinn til að senda vini sínum kveðju.

Æfing. Frásögn manns sem er staddur á sviði í torkennilegu leikhúsi. Ein spurningin er þessi: Hvort er þetta æfing eða sýning?

Stjörnur Cesars. Gamall maður og ungur drengur hittast um kvöld í nýbyggðu úthverfi. Sá gamli er að grafa holu í jörðina.

Icemaster. Risavaxinn amerískur ísskápur gegnir lykilhlutverki, þegar áður ókunn fortíð vitjar manns sem alist hefur upp án föður síns. Fyrir þessa sögu hlaut höfundurinn fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni Listahátíðar 1986. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, innsíður og hlíðfðarkápa góð

Stórir brúnir vængir - Sveinbjörn I Baldvinsson

kr.400

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,420 kg
Ummál 15 × 2 × 22 cm
Blaðsíður:

160

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Almenna bókafélagið

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1989

Hönnun:

Guðjón Ingi Hauksson (kápuhönnun)

Höfundur:

Sveinbjörn I. Baldvinsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Stórir brúnir vængir og fleiri sögur”