Söknuður

Ævisaga Vilhjáms Vilhjálmssonar

Þegar Vilhjálmur Vilhjálmsson lést í bílslysi í Lúxemborg um páskana 1978 var hann aðeins þrjátíu og þriggja ára gamall. Lög hans höfðu smogið svo kirfilega að hjartarótum þjóðarinnar að fólki fannst sem það hefði misst nákominn ættinga við fráfall hans. Óhætt er að segja að þrjátíu árum eftir dauða sinn sé hann dáðari en nokkru sinni. Allir þekkja umsvifalaust vörumerki hans, hina hreinu og björtu rödd. Allir geta raulað Söknuð, Skýið og Lítinn dreng. Færri vita hins vegar að Vilhjálmur var forfallinn lesandi vísindaskáldsagna, var með próf í dáleiðslu, lagði stund á rússnesku og svahílí og tók virkan þátt í alþjóðlegri réttindabaráttu flugmanna. Hann sló ungur í gegn með lögum sem þóttu helst við hæfi hinna eldri en varð sífellt uppreisnargjarnari með aldrinum. Jón Ólafsson segir nú í fyrsta sinn alla sögu eins dáðasta listamanns þjóðarinnar fyrr og síðar. Með ríkulegu skopskyni og innsæi tónlistarmannsins rekur hann lífsþráð Hólmars úr Höfnum sem að lokum varð goðsögnin Vilhjálmur Vilhjálmsson. (Heimild: Bókatíðindi)

Ástand: gott

Söknuður Ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar - Jón Ólafsson

kr.800

1 á lager

Vörunúmer: 8501449 Flokkur: Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,850 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

310 +myndablaðsíður +myndir

ISBN

9789979994701

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Sena

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2009

Hönnun:

Arnar Geir Ómarsson (kápuhönnun)

Höfundur:

Jón Ólafsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Söknuður – Ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar”