Kristín Sigfúsdóttir ritsafn I.-III. bindi

Ritsafn Kristínar Sigfúsdóttur kom út á árunum 1949-1951. Efnið er ekki raðað eftir aldir. Benkuminningar sínar og sagnirnar hefur skáldkonan ritað á síðustu árum, en ljóðin hafa orðið til á ýmsum skeiðum ævidagsins, frá æskutíð til elli. Það varð að ráði að skipa þessu í ffyrsta bindi. Í hinu næsta koma skáldsögurnar tvær, Gestir og Gömul saga. Í þriðja bindi: Sögur úr sveitinni, Tengdamanna, Óskastundin, Melkorka, yngsta skáldrit Kristínar, og úr sveit og bæ, smásögur, er áður hafa birzt víðsvegar í blöðum og tímaritum, en ekki fyrr verið safnað í bók. (Heimild: Jón úr Vör, Formáli, bls 21)

Kristín Sigfúsdóttir fæddist 13. júlí árið 1876 að Helgastöðum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði og ólst þar upp.

Foreldar Kristínar voru fátækir bændur sem ekki gátu kostað börn sín til náms svo Kristín naut aðeins heimakennslu. Kristín hefur ritað endurminningar sínar fram til fermingaraldurs og kemur þar fram hversu mjög hugur hennar stóð til bókmennta og skáldskapar strax á unga aldri.

Kristín las allar bækur sem hún kom höndum yfir og byrjaði snemma að yrkja vísur. Líkt og margar konur á þessum tíma fór hún leynt með yrkingarnar. Í æsku samdi Kristín leikrit sem hún æfði til sýninga í sveitinni og kom fólk víðsvegar að til að horfa á þær. Þau leikrit eru nú öll glötuð því Kristín brenndi handritin að sýningum loknum.

Árið 1901 giftist Kristín sveitunga sínum Pálma Jóhannessyni og hófu þau búskap í Eyjafirði. Lengst af bjuggu þau í Kálfagerði, sem hún var stundum kennd við. Þegar Kristín gekk í hjónaband var hún staðráðin í að hætta öllum skáldskapariðkunum og reyna að standa sig sem búkona. Enda fór svo að næstu árin gafst ekki mikið tóm til ritstarfa. Kristín og Pálmi eignuðust sex börn á fjórtán árum og á því tímabili samdi Kristín einungis erfiljóð og tækifærisvísur. Það var ekki fyrr en börnin voru komin á legg að hún hóf aftur að skrifa af kappi. Upphafið var sagan „Digra Gudda“ sem hún skrifaði að þrábeiðni sonar síns sem vantaði efni í sveitablað sem unglingar í sveitinni handskrifuðu og létu ganga manna á milli. Þetta var seint á öðrum tug tuttugustu aldar og upp úr því fór Kristín að fleiri sögur.

Leikritið Tengdamömmu samdi Kristín 1920. Það var frumsýnt að Saurbæ í Saurbæjarhreppi snemma árs 1923 og síðan sýnt að Þverá í Öngulstaðahreppi og á Akureyri. Leikritinu var alls staðar vel tekið og urðu móttökurnar til þess að haustið 1923 var það gefið út á bók. Það var fyrsta bók Kristínar en á næstu árum komu út eftir hana tvær skáldsögur, eitt smásagnasafn og tvö önnur leikrit.

Kristín varð þjóðkunnur og vinsæll rithöfundur. Framan af var henni vel tekið af ritdómurum sem hrifust sérstaklega af því að höfundur var fátæk og ómenntuð bóndakona. Þessar viðtökur hvöttu hana til að halda áfram að skrifa, en í bréfi til Jóns úr Vör skrifar hún: „Duldist mér þó ekki, að dómarnir voru skrifaðar af vorkunnsemi vegna erfiðrar aðstöðu minnar.“ Með tímanum urðu dómarnir um verk Kristínar harðari og óvægnari og 1927 skrifar Steindór Sigurðsson í ritdómi um skáldsöguna Gesti í Nýjar kvöldvökur XX: „Jeg er hræddur um, að Kristín Sigfúsdóttir sje farin að skrifa of mikið.“ Þessi orð ritdómarans eru næsta furðuleg því í sama dómi skrifar hann að „fangamark snilldarinnar [sé] markað á hverri síðu.“ Hvort sem orðum ritdómarans eða einhverju öðru er um að kenna varð hlé á ritstörfum Kristínar Sigfúsdóttur eftir að síðari skáldsaga hennar, Gömul saga, kom út í tveimur bindum á árunum 1927 og 1928. Það var ekki fyrr en tíu árum síðar að hún hófst aftur handa og skrifaði leikritið Melkorku, en gekk að sögn hægt og illa. Leikritið birtist fyrst í ritsafni hennar sem gefið var út í þremur bindum á árunum 1949-1951. (Heimild: skald.is)

Í ritsafni þetta eru III bindi, eftir Kristínu Sigfúsdóttur

  • I. bindi:
    • Í föðurgarði, bernskuminningar (26)
    • Gamlir sveitungar, sagnir (6)
    • Ljóð og sýningar (31)
  • II. bindi:
    • Gestir
    • Gömul saga
      • Í meinum
      • Eldraunin
  • III. bindi:
    • Sögur úr sveitinni, skáldsögur
      • Æskudraumar
      • Digra Gudda
      • Pétur frændi
      • Gunna frá Dal
      • Gömlu hjónin
      • Birta
    • Tengdamanna, sjónleikur
    • Óskastundin, ævintýraleikur
    • Melkorka, sjónleikur
    • Sögur úr sveit og bæ, smásögur og tveir þættir
      • Örbirgð
      • Skuldin
      • Þeim var ek verst
      • Ein í skugga
      • Vanþakklæti
      • Þorlákur í Seljahlíð
      • Höfuðkúpan í Hrísum

Ástand: gott.

kr.18.000

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,7 kg
Ummál 14 × 10 × 19 cm
Blaðsíður:

1312 (I. bindi: bls. 336, II. bindi: bls. 528, III. bindi: 448)

ISBN

Ekkert

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni án hlífðarkápu

Útgefandi:

Ísafoldarprentsmiðja

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

I. bindi: 1949, II. bindi: 1950, III. bindi: 1951

Höfundur:

Jón úr Vör (sá um útgáfuna), Kristín Sigfúsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kristín Sigfúsdóttir ritsafn – I.-III. bindi”