Jöklar á Íslandi

Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga Björnssonar og samstarfsmanna hans við Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum þessa lands og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, hvernig jöklar hafa mótða landið og eytt. Bókin segir sögu þekkingaröflunar og skilnings á jöklum frá því fyrst var farið að rannsaka þá fram til nútímarannsókna. Rakin eru spor lögnu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu undir jöklum Íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra.

Myndefni er fjölbreytt, ljósmyndir, skýringarmyndir, landakort, gervihnattarmyndir og þrívíð kort af landslagi undir jöklum sem nú birtast í fyrsta sinn almenningi á prenti. Enn geta menn ekki litið þann hluta Íslands augum með öðrum hætti.

Helgi Björnsson er á meðal fremstu fræðimanna á sínu sviði. Í hartnær fjóra áratugi hefur hann unnið að jöklarannsóknum á Íslandi og kynnt almenningi rannsóknir sínar með fyrirlestrum og fræðigreinum. Á ferðum sínum um Ísland skilur Helgi sjaldan myndavélina við sig, og því falla ljósmyndir og texti saman í eina heild í þessari bók. (Heimild: Bakhluti bókarinnar)

Bókin Jöklar á Íslandi eru 11 kaflar + viðauki, þeir eru:

  • Jöklarannsóknir á Íslandi
  • Lesið í landið
  • Tilurð jökla og eðli
  • Ísafold
  • Jöklar á Suðurlandi
    • Mýrdalsjökull
    • Eyjafjallajökull
    • Tindafjallajökull
    • Torfajökull
    • Helka
  • Jöklar á Vesturlandi
    • Langjökull
    • Þórisjökull
    • Eiríksjökull
    • Hrútfell
    • Ok
  • Jöklar á Miðhálendi
    • Hofjökull
    • Kerlingarfjöll
    • Tungnafellsjökull
  • Vatnajökull og jöklar austan hans
  • Jöklar á Norðulandi
    • Smájöklar á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar
    • og Eyjafjarðar og Skjálfanda
  • Jöklar í Vestri
    • Drangajökull
    • Gláma
    • Snæfellsjökull
  • Annáll jöklarannsókna á Íslandi
  • Viðauki
    • Icelanic Glaciers
    • Tilvísanir
    • Heimildir
    • Sérheiti og atriðisorð
    • Að verklokum

Ástand:  vel með farin bæði innsíður og kápa.

Jöklar á Íslandi - Helgi Björnsson

kr.9.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 2,85 kg
Ummál 25 × 5 × 34 cm
Blaðsíður:

479 +myndir +kort +línurit +ritsýni +töflur +sérheiti og atriðisorð: bls. 454-478 +Icelandic glaciers [English summary]: bls. 425-433

ISBN

9789935100047

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Opna bókaútgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2009

Hönnun:

Næst / Líba Ásgeirsdóttir (umbort og kápuhönnun), Ólafur Grímur Björnsson (sérheita- og atriðisorðaskrá)

Ljósmyndir:

Finnur Pálsson (kort í viðauka), Fixlanda / Hans H. Hansen (kort af jöklum), Helgi Björnsson (jöklamyndir), Helgi Björnsson (ljósmynd á kápu), Helgi Laxdal (þrívíddarmyndir af jöklum), Næst / Björn Valdimarsson (skýringarmyndir), Ragnar Axelsson (ljósmynd af höfundi)

Höfundur:

Helgi Björnsson