Íslandsatlas

Kort í mælikvarðanum 1:100.000

Íslandsatlas 1:100.000 er viðamesta kortabók yfir Ísland sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir og markar þáttaskil í íslenskri kortasögu. Landið allt, frá hæstu tindum til annesja og eyja, er sýnt á 132 stórbrotnum kortum í mælikvarðanum 1:100.000. Kortin eru afar nákvæm og geyma rúmlega 43.000 örnefni sem vísað er til í ítarlegri örnefnaskrá sem auk glæsilegra inngangskafla um íslenska náttúru eykur mjög á notagildi bókarinnar. Með stafrænni kortatækni eru svipbrigði landsins sýnd með ótrúlegri nákvæmni svo hvert mannsbarn skynjar hæð fjalla, dýpt dala og víðáttur öræfanna líkt og flogið væri yfir. Íslandsatlas er einstakt uppsláttarverk um landafræði Íslands sem ætti að vera til á hverju heimili. Svona hefur enginn séð Ísland áður. (Heimild: Bókatíðindi)

  • Kortlagning Íslands: ágrip af kortasögu landsins / Örn Sigurðsson
  • Ágrip af jarðsögu Íslands / Haukur Jóhannesson
  • Gerðir jökla á Íslandi og saga jöklabreytinga / Oddur Sigurðsson
  • Flóra og gróður Íslands / Eyþór Einarsson
  • 132 kort í mælikvarðanum 1.100.000
  • Rúmlega 43.000 örnefni
  • Örnefnaskrá: bls. 162-207

Verkið Íslandsatlas er skipt niður í 9 kafla, þeir eru:

  • Kortlagning Íslans: ágrip af kortasögu Íslands Örn Sigurðsson
  • Ágrip af jarðsögu Íslands Haukur Jóhannesson
  • Gerðir jökla á Íslandi Oddur Sigurðsson
  • Flóra og gróður Íslands Eyþór Einarsson
  • Yfirlitskort af Íslandi
  • Sveitafélög á Íslandi
  • Blaðskipting og skýringar
  • Íslandskort 1:100.000
  • Örnefnaskrá

Ástand: Mjög gott

Islandsatlas 1:100000 - Mál og menning

kr.15.500

2 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 3,5 kg
Ummál 36 × 4 × 47 cm
Blaðsíður:

207 +myndir +kort

ISBN

9979334941

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi og öskju

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2015

Hönnun:

Hans H. Hansen (kortagerð)

Ritstjóri

Örn Sigurðsson (kortaritstjóri)

Höfundur:

Eyþór Einarsson (flóra og gróður Íslands), Haukur Jóhannesson (ágrip af jarðsögu Íslands), Oddur Sigurðsson (gerðir jökla á Íslandi og jöklabreytingar)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Íslandsatlas 1:100000 – Mál og menning”