Grænt og gómsætt

Um jurtafæði og matreiðslu þess á sælkeravísu

Grænt og gómsætt er bók sælkeranna. Hér er fjallað ítarlega um matreiðslu jurtafæðis og boðið upp á alls konar rétti. Sumir eru einfaldir og ódýrir – aðrir íburðarmiklir og glæsilegir. Bókin er samin af einum helsta meistara Breta á þessu sviði, og í henni er að finna rúmlega 200 uppskriftir auk þess sem sex heimsfrægir matreiðslumeistarar setja saman hver sína veislumáltíð. Heita má að nær allt sem notað er í uppskriftunum fáist hér á landi og gefnar eru greinargóðar upplýsingar um þær fjölmörgu tegundir af grænmeti, ávöxtum, kornmeti og belgjurtum sem nú eru fáanlegar.

Í bókinni eru leiðbeiningar um mataræði og m.a. fjallað um sérþarfir ungbarna, íþróttamanna og þungaðra kvenna. Grænt og gómsætt á erindi við alla þá sem vilja njóta lystisemda jurtafæðis, bæði þá sem neyta þess eingöngu og þá sem neyta þess öðru hvoru til tilbreytingar og heilsubótar. (Heimildir: bakhlið bókarinnar)

Bókin Grænt og gómsætt er skipt niður í sex kafla, þeir eru:

  • Að lifa góðu lífi á jurtafæði
  • Breytt mataræði
  • að matreiða jurtafæði
  • Orðaskrá
  • Uppskriftir: Lostæti úr jurtafæði
  • Meistarar bjóða til veislu
    • Claudia Roden: Jónsmessuveisla úti í náttúrunni
    • Alice Waters: Fyrsta máltíð á hlýjum vordegi
    • Arabella Boxer: Kvöldverðarboð
    • Martha Rose Shulman: Þakkargjörðaveisla
    • Caroline Connan: Jólaboð
    • Barbara Kafka: Brúðkaupsveisla
  • Fjölskyldan á jurtafæði
    • að setja saman máltíð
  • Eftirmáli / Atriðaskrá

Ástand: mjög góð, ennþá í plastumbúðum

Grænt og gómsætt, Colin Spencer

kr.1.500

1 á lager

Vörunúmer: 8501382 Flokkur: Merkimiðar: ,

SKU: 8501382Flokkur: Merkimiðar: ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,1 kg
Ummál 21 × 2,5 × 26 cm
Blaðsíður:

256 +myndir +töflur +Atriðaskrá: bls. 254-256

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni án hlífðarkápu

Heitir á frummáli

The new vegetarian

Útgefandi:

Forlagið

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1988 (kom síðar út árið 1994)

Ritstjóri

Patricia Burgess

Ljósmyndir:

David Johnson

Hönnun:

Sara Mathews (grafísk hönnun)

Íslensk þýðing

Helga Guðmundsdóttir

Höfundur:

Colin Spencer

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Grænt og gómsætt – jurtafæði og matreiðslu þess”