Gagnfræðakver handa háskólanemum

Í þessu kveri er að finna ýmislegt sem háskólakennarar ætlast til að nemendur þeirra kunni, ýmislegt sem jafnvel skiptir sköpum í námi en er þó sjaldan beinlínis kennt. Fjallað er um:

  • námstækni og vinnubrögð í háskóla,
  • bókasöfn, skipulag ritsmíða,
  • ritað mál,
  • orðanotkun,
  • heimildanotkun,
  • þýðingar á erlendur efni,
  • uppsetningu taflna og
  • sitthvað fleira sem huga þarf að í rannsóknavinnu og námi.

Boðskapur kversins er sá að um háskólanám og fræðimennsku gildi eins konar leikreglur sem þér sem ætla sér þroska eða frama á þeim vettvangi verða að læra, leikreglur sem einnig nýtast í lífinu sjálfu utan háskólaveggjanna. Þessar reglur felast sjaldan í skýrt skilgreindri tækni heldur í fremur óljósu en þó almennu samkomulagi um hvað gangi eða brogi sig og hvað ekki. Reynt er að skýra skilmerkilega frá þeim reglum og tækniatriðum sem lítill eða enginn ágreiningure er um og að gefa tóninn um hvað teljist góður smekkur þegar kennimörk eru óljós eða aðferðir fjölbreyttar. (Heimild: bakhlið bókarinnar)

Bókin er skipt niður í 9 kafla og hver kafli með undirköflum, þeir eru:

  • Námstækni
  • Ritsmíðar í námi
  • Staðreyndir og mælingar
  • Rökstuðningur
  • Orðanotkun og stíll
  • Heimildarnotkun
  • Töflur og skýringarmyndir
  • Þýðingar
  • Tæknileg atriði í próftöku
  • Heimildarskrá og efnisatriðaskrá

Ástand: gott

Gagnfræðakver handa háskólanemum - Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson

kr.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,254 kg
Ummál 17 × 1,5 × 24 cm
Blaðsíður:

135 +línurit, +töflur

ISBN

9789979547624

Kápugerð:

Gormabók

Útgefandi:

Háskólaútgáfan

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2007

Höfundur:

Friðrik H. Jónsson, Sigurður J. Grétarsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Gagnfræðakver handa háskólanemum”