Barnalæknirinn
Handbók fyrir foreldar um barnasjúkdóma og slys. Einkar handhæg,, fljótleg og auðveld í notkun.
Barnalæknirinn er ómissandi handbók fyrir allar fjölskyldur, bók sem mjög auðvelt er að fletta upp í og finna í skyndi umfjöllun um hvers kyns sjúkleika sem hrjáð getur börn á öllum aldri, frá fæðingu til unglingsára.
Sagt er frá hátt á annað hundrað barnasjúkdómum, kvillum og vandamálum, einkennum þeirra, meðferð og bata. Hverjum kafla fylgja leiðbeiningar um hvenær ástæða sé til að leita læknis og hvað foreldrar geta sjálfir gert til að hjúkra barni sínu og bæta heilsu þess.
Mikill fjöldi skýringarteikninga auðveldar greiningu sjúkdómseinkenna og hjálpar foreldrum að átta sig á veikindum barna sinna og veita þeim hjúkrun og rétta umönnun.
Sérstakur kafli er í bókinni um skyndihjálp í neyðartilvikum. einnig er ítarlega fjallað um hjúkrun veikra barna og um öryggi barna á heimilum og utan þeirra. (heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.