Sagan af Ísfólkinu eftir Margit Sandemo kom upphaflega út á árunum 1980 til 1989. Bækurnar komu út hjá Prenthúsinu á árunum 1982 til 1989.

Margit hóf að semja bækurnar kringum 1980.  fyrstu sögurnar komu út sem framhaldssaga í tímaritinu Hjemmet. Bækurnar rekja ættarsögu Ísfólksins sem á hvílir bölvun frá 16. öld til okkar daga.

Sagan gengur út á að ættfaðirinn Þengill hinn illi hafi selt Djöflinum sál sína. Þetta olli bölvuninni sem hrjáði afkomendur hans og fólst í því að einn af hverri kynslóð yrði þjónn Djöfulsins. Merki bölvunarinnar eru rafgul augu og yfirnáttúrulegir kraftar. Fyrsta sagan gengur út á að einn afkomandi hans, Þengill hinn góði, berst gegn bölvuninni sem hrjáir hann. Sögurnar snúast yfirleitt um þann sem bölvunin lendir á í hverri kynslóð.

Alls komu út 47 bækur, þær eru:

1 Álagafjötrar 25 Guðsbarn eða galdranorn
2 Nornaveiðar 26 Álagahúsið
3 Hyldýpið 27 Hneykslið
4 Vonin 28 Ís og eldur
5 Dauðasyndin 29 Ástir Lúcífers
6 Illur arfur 30 Ókindin
7 Draugahöllin 31 Ferjumaðurinn
8 Dóttir böðulsins 32 Hungur
9 Skuggi fortíðar 33 Martröð
10 Vetrarhríð 34 Konan á ströndinni
11 Blóðhefnd 35 Myrkraverk
12 Ástarfuni 36 Galdratungl
13 Fótspor Satans 37 Vágestur
14 Síðasti riddarinn 38 Í skugga stríðsins
15 Austanvindar 39 Raddirnar
16 Gálgablómið 40 Fangi tímans
17 Garður dauðans 41 Djöflafjallið
18 Gríman fellur 42 Úr launsátri
19 Tennur drekans 43 Í blíðu og stríðu
20 Hrafnsvængir 44 Skapadægur
21 Um óttubil 45 Böðullinn
22 Jómfrúin og vætturin 46 Svarta vatnið
23 Vorfórn 47 Er einhver þarna úti?
24 Í iðrum jarðar

Allar bækur í þessum flokki eru án krot eða nafnamerkingar.